Jólahúfa 2022
Jólahúfa 2022
Jólahúfa 2022

Jólahúfa 2022

Venjulegt verð 500 kr 0 kr

Jólahúfa 2022 er falleg húfa með mörgum skemmtilegum munstrum. Munstrin eru innblásin af munstrunum sem mamma mín og amma hafa verið vanar að prjóna í gegnum tíðina. Þær hafa prjónað óteljandi magn af flíkum og fylgihlutum með þessum munstrum.

Húfan er prjónuð úr neðan frá og upp á prjóna nr. 4.

Stærðir: 
6-12M (1-2 ára) 2-4 ára (4-6 ára) 6-8 ára (8-10 ára)

Garn: 
Drops Karisma

Garnmagn: 
Litur 1 (Rauður):
1 (1) 1 (1) 1 (1) hnotur
Litur 2 (Hvítur):
1 (1) 1 (1) 1 (2) hnotur
Litur 3 (Grænn):
1 (1) 1 (1) 1 (1) hnotur

Athugð að um er að ræða áætlað magn af garni og mismunandi er eftir prjónurum hversu mikið garn þarf.

Það sem þarf: 
Hringprjónn og/eða sokkaprjónar nr. 4 

Prjónfesta: 
10x10 = 21 L x 28 umf.

 

 

Uppskriftin berst á rafrænu formi til viðtakanda þegar greiðsla hefur verið staðfest. Ef einhver vandamál koma upp við pötnun hafið þá samband á knithilda@knithilda.is