Mistur heilgalli
Venjulegt verð
1.200 kr
Heilgallinn Mistur er fallegur galli með einföldu munstri sem samanstendur af sléttum og brugðnum lykkjum. Heilgallinn er prjónaður neðan frá og upp.
Stærðir:
Heilgalli: Nýbura (0-3M) 3-6M (6-12M) 1-2 ára (2-3 ára)
Garn:
Drops Merino Extra Fine
Garnmagn:
Heilgalli: 3 (5) 5 (6) 7 (8) dokkur
Athugð að um er að ræða áætlað magn af garni og mismunandi er eftir prjónurum hversu mikið garn þarf.
Það sem þarf:
Hringprjón nr. 4
sokkaprjónar nr. 4
Prjónfesta:
10x10 = 22 L x 30 umf.
Uppskriftin berst á rafrænu formi til viðtakanda þegar greiðsla hefur verið staðfest. Ef einhver vandamál koma upp við pötnun hafið þá samband á knithilda@knithilda.is